What's new James?

Pæling dagsins/kvöldsins/morgunsins
4.2.2026 (klárað kl 02:24)
Nú hef ég til fullt af textum og tilfinningum sem vel væri hægt að nota í lag, sem maður myndi halda væri ágætlega gott miðað við aðstæður. Vandinn er sá að textarnir eru oft úreltir. Sumir vinna með rangt hugafar og sumir bara einfaldlega eiga ekki lengur við í nútímanum. Hlutverk textarna er að gefa mér samhengi tilfinninga minna og hjálpa mér að skilja hvað er í gangi í hausnum á mér. Þetta er mjög nytsamlegt en mig langar að gefa þeim lengra líf með því að skrifa lag úr þeim. Málið er þó að það er frekar óhollt að syngja texta, sem hefur þjónað tilgangi sínum, aftur og aftur. Flestir textarnir eru þess eðlis að þeir renna út, þessi tilfinning er liðin og því er óhollt að festa sig í henni. Það er útaf þessu sem ég ber ákveðna virðingu og samúð fyrir tónlistarmönnum sem flytja lög um úreltar tilfinningar, því það getur ekki verið auðvelt að syngja t.d. lagið um skilnaðinn þinn aftur og aftur í 10+ ár. Þó ég segist "virða" þetta þá meina ég "vá þetta hlýtur að vera erfitt, en þú ættir allan daginn að fara færa þig áfram". Maður verður svoldið að passa sig í þessu því ef þú festis of djúpt þá verðurðu algjör skíthæll. Ég hef því miður engan áhuga á því að vera skíthæll. En já, hugsanlega er eitthvað hægt að klippa til setningar hér og þar til að mynda eitthvað flott.